Aukaþing seinni boðun

By:

Kæru félagar, hér er síðara fundarboð á aukaþing TKÍ sem haldið verður þann 30. september kl. 18:00 í sal D í höfuðstöðvum ÍSÍ að Engjavegi 6.

Dagskrá þingsins er sem hér segir:

  1. Þingsetning
  2. Kosning þingforseta
  3. Kosning þingritara
  4. Kynning á Afreksstefnu TKÍ fyrir árin 2020-2024
  5. Atkvæðagreiðsla um Afreksstefnu
  6. Kynning á reglugerð um höfuðspörk
  7. Atkvæðagreiðsla um reglugerð um höfuðspörk

Meðfylgjandi í fundarboði eru eintök af Afreksstefnu TKÍ fyrir árin 2020-2024 og Reglugerðar um höfuðspörk. Fundarstjóri verður Haukur Skúlason.

Með kveðju Stjórnin