Beltakerfið

Beltakerfið virkar framandi fyrir marga hverja sem eru að byrja að æfa Taekwondo, þetta á reyndar við um flestar aðrar sjálfsvarnaríþróttir. Iðkendur taka próf með reglulegu millibili til að sýna sjálfum sér og þjálfaranum að þeir hafi lært og þróast í íþróttinni. Einnig er nauðsynlegt að taka próf til að komast áfram í greininni og læra æðri tækni, munstur og heimspeki á bak við hana.

Mikilvægt er að bera virðingu fyrir nemanda, eldri eða yngri, sem komist hefur lengra í Taekwondo rétt eins og við eigum að bera virðingu fyrir eldra fólki, sem veit meira um lífið en við sjálf.

Beltakerfið er í grundvallaratriðum eins hjá flestum félögum þó að til séu undantekningar. Yfirleitt er það þannig að byrjað er með 11. kup og þaðan unnið sig áfram jafnt og þétt upp í 1. kup. Þegar 1. kup er náð er næsta skrefið svartabeltaprófið sem byrjar í 1. Dan og síðan liggur leiðin áfram upp í 10. dan.

Beltakerfið

11. Kup:
Hvítt belti: Sak­leysi og skað­leysi, byrjunin.
10. Kup:
Hvítt belti með gulri rönd.
9. Kup:Gult belti: Sólin skín á nemandann og hann er að byrja að þroskast.
8. Kup:Appelsínu­gult belti: Þol og kraftur er að byggjast upp í nemandanum.
7. Kup:Grænt belti: Gróður. Nemandinn er að verða betri.
6. Kup:Blátt belti: Nemandinn er eins og sjórinn, hann veit mikið, en veit ekki hvar tak­mörkin liggja. Hann fær aukinn skilning.
5. Kup:Blátt belti með rauðri rönd.
4. Kup:Rautt belti: Rauðum er hér líkt við eld og táknar brennandi áhuga og e.t.v. bar­daga­andann.
3. Kup:Rautt belti með einni svartri rönd.
2. Kup:Rautt belti með tveimum svörtum röndum.
1. Kup:Rautt belti með þremur svörtum röndum.
1. Dan:Svart belti. Nemandinn er líkam­lega sterkur og hefur öðlast mikla þekkingu og þroskast í Taekwondo.

© Texti: Sigrún Anna Qvindesland