Vigtun Bikarmót 1

By:

Vigtun fyrir Bikarmót 1 Cadet, Junior, Senior og Veteran bardaga hluta mun fara fram Laugardaginn 16.nov klukkan 17:30-19:00 í húsakynnum TKÍ í Laugardal, Engjavegi 6 104 Reykjavík. Þá verður boðið upp á vigtun á mótstað í Keflavík á laugardeginum frá 11:00-12:00. Fyrir þá sem óska eftir að láta vigta sig á sunnudagsmorgni á mótsstað er hægt að senda inn ósk um það fyrir 21:00 föstudaginn 15. nóvember á póstfangið malsortafa@tki.is. Með von um að þetta hjálpi sem flestum að komast í vigtun með sem minnstri fyrirhöfn og ferðalögum. 

Dómaranefnd TKÍ