Úrtökur og opnar æfingar hjá landsliðinu í bardaga um helgina

By:

Núna um helgina 6.-8. september munu fara fram úrtökur og opnar æfingar hjá landsliðinu í bardaga. Allir sem eru á seinasta ári í Cadet og eldri með að lágmarki 2. kup og upp eru velkomnir. Þeir sem ætla að mæta eru beðnir um að mæta með TKD CV eða að senda hana á tveita@mudo.no. Þar þurfa að koma fram allar grunnupplýsingar svo sem félag, beltagráða, hvert þið stefnið með ykkar Taekwondo, hvað þið æfið mikið í viku og hvaða árangri þið hafið náð á mótum til þessa. 

Æfingarnar/úrtökurnar fara fram :  

Föstudag 18:00-20, Björk Haukahrauni 1, Hafnarfirði

Laugardag 10:00-16:00, Ármanni Engjavegi 7, Reykjavík

Sunnudag 10:00-14:00, Aftureldingu Íþróttamiðstöðinni Varmá, Mosfellsbæ