Úrtökur í bardaga helgina 13 – 15. janúar
Helgina 13. – 15. janúar nk. fara fram úrtökur fyrir landslið í bardaga.
Allir keppendur, rautt belti og upp, í junior (14-17 ára) og senior (18-35 ára) eru boðnir velkomnir. Vinsamlegast mætið með allar hlífar og Daedo sokka á sunnudegi.
Þjálfarar eru velkomnir í starfið frá upphafi.
Nýir iðkendur eru hvattir til að koma með ferilskrá og markmið sín á úrtökurnar og afhenda Gunnari landsliðsþjálfara. Einnig má senda ferilskrá á tveita@mudo.no
Dagskrá:
Föstudagur 19. ágúst
kl. 18.30-20.00 Æfing
Laugardagur 20. ágúst
kl. 10.00-12.00 Æfing
kl. 12.00-14.00 Hlé
kl. 14.00-16.00 Æfing
Sunnudagur 21. ágúst
kl. 11.00 -14.00 Daedo æfing
Staðsetning kemur síðar.