TKÍ bikarmót 2
Annað TKÍ Bikarmótið fyrir veturinn 2011/2012
Bikarmótið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Austurbergi, Breiðholti, dagana 21. og 22. janúar næstkomandi. Mótið hefst kl 9.00. Cadet hópur keppir á laugardeginum á þremur gólfum, einu poomsae og tvem sparring. Á sunnudeginum keppa minioir, junior, senior og superior á tvem gólfum. Mótstjórn áskilur sér rétt til að breyta þessu fyrirkomulagi í samræmi við skráningar.
Í yngri flokkunum á laugardag verður leitast við að skipta keppendum í 4 manna hópa sem keppa í sparring en í poomsae keppa tveir hópar saman (8 iðkendur) .
Á sunnudeginum verður leitast við að fara eftir reglum WTF í flokka skiptingu og mótsfyrirkomulagi, svo framarlega sem það er hægt, bæði í sparring og poomsae.
Skráningafrestur er á miðnætti föstudaginn 13. janúar. Senda skal skráningu á netfangið sigridursh@gmail.com
Til að ná góðu flæði í mótið og geta haldið tímamörk, þá er mjög mikilvægt að öll félög skrái iðkendur sýna á þar til gert skráningarform (bætið inn línum eftir þörfum).
Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru: Nafni iðkenda, kennitala, beltagráða, hæð og þyngd. Engin vigtun verður, en vigt verður á staðnum og áskilur mótstjórn sér rétt til að vigta einstaka keppendur, sé talin ástæða til eða að upp komi kvartanir.
Einnig þarf að koma fram hvort viðkomandi ætlar að keppa í bæði poomsae og sparring eða bara í annarri greininni. Allir keppendur 12 ára og eldri þurfa að hafa keppnisleyfi frá TKÍ (afhendist á mótsdag sé keppandi ekki þegar kominn með leyfi ef allar skráningar eru réttar og viðkomandi félag er skuldlaust við TKÍ og Felix rétt uppfærður). ATH. Þeir sem þegar hafa fengið TKÍ passa/keppnisleyfi, skylda er að koma með þá.
Ýtarlegri lýsing á mótsfyrirkomulagi verður sett inn á heimasíðu TKÍ þegar hún liggur endanlega fyrir.
Þáttökugjöld á barnamótinu á laugardag eru 1500 kr og fyrir fullorðna á sunnudag er gjaldið 2500 kr
Greiða skal þátttökugjöldin inn Bankareikning: 1195 – 26 – 41360 KT: 580991 – 1309
Fyrir miðnætti miðvikudaginn 18. janúar.
Vakni upp einhverjar spurningar, vinsamlegast hafið samband við mótstjóra:
Sigríður Hlynsdóttir, sigridursh@gmail.com
Skráningarform: skraning1TkiBikarmot