Tilnefningar í Mótanefnd

By:

TKÍ óskar eftir tilnefningum í Mótanefnd. Stjórnin óskar því eftir að hvert félag tilnefni aðila í nefndina með tölvupósti sem sendur skal á tki@tki.is fyrir mánudaginn 19. september. Stjórn TKÍ mun velja nefndarmenn úr innsendum tilnefningum og tilnefna formann nefndarinnar.

Hlutverk mótanefndar verður að skipuleggja og fá aðila til þess að halda mót á vegum TKÍ, ásamt því að styðja við mótshaldara. Þar með talin eru Bikarmótin þrjú, Íslandsmeistaramótin tvö og Reykjavík International Games, en einnig verður það hlutverk nefndarinnar að styðja við annað mótastarf á vegum aðildarfélaga eftir því sem unnt er.

Mótanefndin skal leita samþykkis stjórnar TKÍ varðandi fjárútlát, ef kemur til álitamála, og í stórum málum svo sem hvar, hvenær og af hverjum mót skuli haldin.

Fyrsta verk mótanefndar verður að styðja við Taekwondodeild Bjarkanna sem mun halda Bikarmót 1, 15-16. október ásamt Íslandsmeistaramótinu í bardaga og formum 5-6. nóvember.

Nefndin ber að skipuleggja mönnun móta ásamt því félagi sem heldur mótið ásamt því að að vera í nánu samstarfi við Tæknideild TKÍ og Dómaranefnd TKÍ

Mótanefnd verður skipuð til tveggja ára í senn. Fráfarandi mótanefnd ber ábyrgð á að ný mótanefnd fái allan þann stuðning er þarf til þess að skiptingin gangi snurðulaust.