Tilnefningar í Dómaranefndir TKÍ

By:

TKÍ hefur ákveðið að skipta upp dómarnefnd sambandsins í annars vegar Dómarnefnd í Kyorugi og hinsvegar Dómaranefnd í Poomsae. 

Því óskar TKÍ eftir tilnefningum í báðar nefndirnar annarsvegar viðbót í Kyorugi nefndina og hinsvegar aðila í dómarnefnd í Poomsae. Stjórnin óskar því eftir umsóknum í nefndirnar, með tölvupósti sem sendur skal á tki@tki.is fyrir föstudaginn 8. nóvember. Stjórn TKÍ mun velja nefndarmenn úr innsendum tilnefningum og tilnefna formann Poomsae nefndarinnar.

Vinsamlegast tiltakið reynslu og menntun tilnefndra aðila til dómarastarfa.

Hlutverk Dómaranefndar verður fjölþætt, en krefst m.a. náinnar samvinnu við mótanefnd, samvinnu við landslið í Poomsae, auk samráðs og samvinnu við stjórn TKÍ.  

Poomsae dómaranefndin skal stuðla að aukinni dómaramenntun á Íslandi, og fá til þess aðila til þess að halda dómaranámskeið á vegum TKÍ, svo og að stuðla að því að íslenskir dómarar fái tækifæri til þess að öðlast viðunandi menntun og reynslu erlendis.  

Nefndin skal skipuleggja sérstakar landsliðsæfingar með tækjabúnaði í samráði við landsliðsþjálfara, og skal bera ábyrgð á að dómarar og landsliðsfólk sé kunnugt þeim tækjabúnaði sem notaður er á mótum innanlands sem utan.  

Dómaranefnd skal manna dómarastöður á mótum TKÍ í samráði við mótanefnd, og skal leita leiða til þess að tryggja að öll keppnisgólf verði fullmönnuð af dómurum með viðeigandi menntun og reynslu að gefnu tilliti til keppnisflokks. Leitast skal m.a. við að hafa 5 dómara á hverju gólfi í poomsae.  

Dómaranefnd skal útvega yfirdómara fyrir öll mót TKÍ í samráði við stjórn TKÍ og mótanefnd. Yfirdómari skal bera ábyrgð á að yfirfara dóma á mótum og veita uppbyggilega endurgjöf með það í huga að þróa viðkomandi áfram sem dómara.  

Dómaranefnd skal aðstoða mótanefnd við að tryggja að starfsumhverfi dómara á mótum TKÍ verði til fyrirmyndar. Dómarar skuli geta gengið að vísu að því að þau verði leyst af og fái grunnþörfum sinnt. Dómarar skulu fá stuðning frá reyndari dómurum. Ungir og óreyndir dómarar skulu geta reitt sig á að þau beri ekki ábyrgð á samskiptum við deiluaðila og séu varin gegn áreiti.  

Dómaranefnd skal skapa og skrásetja viðmið um aga og góða siði á mótum ásamt þeim venjum og verkferlum sem dómarar skuli hafa til þess að beita agaviðurlögum á mótsstað.   Nefndin skal semja tillögur um reglur um mót á vegum TKÍ í samráði við mótanefnd og stjórn TKÍ. Tekið skal fram að stjórn TKÍ þarf að samþykkja allar slíkar reglur. Einnig skal nefndin bera ábyrgð á að veita dómurum opinbera viðurkenningu fyrir störf sín, s.s. bikar fyrir dómara mótsins.