Tilkynning frá Svartbeltisprófanefnd TKÍ

By:

Svartbeltisprófanefnd Taekwondosambands Íslands tilkynnir í samstarfi við Aftureldingu: Haldið verður svartbeltispróf laugardaginn 17.apríl 2021 og fer það fram í húsnæði Aftureldingar.

Prófið er opið öllum félögum og verður hægt að taka 1.-3. dan. Forpróf, skriflegt og þrekpróf, verður haldið í samráði við félögin í síðasta lagi viku fyrir aðalprófið. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á dan@tki.is og er síðasti dagur til þess miðvikudagur 31. mars 2021. Fræðast má um kröfur og uppsetningu prófsins hér: http://tki.is/reglur-taekwondosambands-islands-um…/