Svartbeltispróf TKÍ 17. Desember 2022

By:

Dan-próf TKÍ verður haldið 17. desember 2022.

Áhugasamir sendi tölvupóst á tki@tki.is fyrir 17. október nk.

Opin kynningaræfing verður haldin laugardaginn 1. október kl. 14.00-15.00. Á þeirri æfingu verður tekið stöðumat á próftökum auk þess sem farið verður yfir prófið sjálft.

Æfingabúðir verða svo haldnar þrisvar sinnum fram að prófdegi. Nánari upplýsingar verða veittar þegar iðkendur hafa skráð sig.

Farið verður yfir Poomsae fyrir 1. – 5. dan, grunnatriði bardaga út frá Kukkiwon (KKW) stöðlum og almenn grunntækni ásamt orðaforða. Próftakar munu einnig fá ritgerðarefni við hæfi.

Dan nefnd TKÍ 2022-2024:

Formaður DAN-nefndarinnar, Sigursteinn Snorrason 7. dan, 3rd class dan examiner

Eduardo Rodriquez 5. dan

Daníel Jens Pétursson 5. dan