Mótareglur TKÍ

By:

Mótanefnd hefur í samráði við stjórn TKÍ ákveðið að setja saman hóp til að smíða mótareglur fyrir sambandið. Óskað er eftir að hvert félag tilnefni einn aðila til að vinna í hóp sem smíðar reglurnar. Unnið verður í nánu samstarfi við stjórn og nefndir sambandsins sem koma að mótahaldi. Mikilvægt er að öll félög sem keppa á mótum sambandsins taki þátt í starfinu til að sem breiðust sátt náist um reglurnar. Þekking eða vilji til að kynna sér ítarlega mótahald og regluverk tengd því nauðsynlegt. Tilnefningar berist til TKÍ eigi síðar en 5. Mars næstkomandi á tki@tki.is