Meistari Sigursteinn Snorrason kominn með 7. dan

By:
Sigursteinn Snorrason með skjalið frá Kukkiwon

30. maí síðastliðinn þreytti meistari Sigursteinn Snorrason fyrstur Íslendinga 7. dan próf hjá Kukkiwon í Seoul Kóreu. Kim Young Choong 9. dan og Kim Young Sun 8. dan voru dómarar fyrir hönd Kukkiwon. Sigursteinn stóðst prófið með prýði og er nú hæst gráðaði Íslendingurinn. Taekwondosamband Íslands óskar meistara Sigursteini innilega til hamingju með áfangann.