Landsliðsúrtökur í sparring 2015/2016
Helgina 11. – 13. september verða landsliðsæfingar í sparring samhliða úrtökum fyrir landsliðið í vetur. Eftir þessa æfingu verða valdir keppendur til að fara á EM junior í Lettlandi og undir 21 árs í Rúmeníu. Ennfremur verður valið í senior hóp sem sett hefur stefnuna á forkeppni ÓL í Tyrklandi.
Þessar æfingar eru grunnforsenda þess að komast í landsliðið og mælst er sterklega til þess að þjálfarar þeirra keppenda sem ætla sér í landsliðið mæti ennfremur á æfingarnar. Það er mikilvægt að þjálfarar einstakra keppenda mæti á landsliðsæfingar til að geta fylgt áætlun landsliðsþjálfarans á milli þess sem landsliðsæfingar eru haldnar. Iðkendur sem ekki mæta á úrtökurnar á ofangreindum dagsetningum geta ekki vænst þess að vera gjaldgengir í landsliðið. Við hvetjum því sem flesta til að mæta.
Æfingin 11. september verður í Keflavík og æfingarnar 12. og 13. september verða hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ, nánari tímasetningar verða auglýstar um helgina.
Við hlökkum til að sjá ykkur 🙂
Stjórn TKÍ