Landsliðsþjálfari í Sparring kynntur

By:

Nú styttist í að við kynnum nýjan landsliðsþjálfara í Sparring. Fólk fætt 2004 og eldra sem hefur áhuga á að taka þátt í landsliði Íslands í Kyorugi er beðið um að taka frá helgina 6.-8. mars næstkomandi þar sem sú helgi verður landsliðshelgi. Föstudaginn 6. mars klukkan 18:00 mætir nýr þjálfari og heldur kynningu í sal E í húsi ÍSÍ Engjaveg 6. Nánari dagskrá helgarinnar verður auglýst á næstu dögum.