Landslið TKÍ

By:

Í ljósi aðstæðna munu landsliðsæfingar í bardaga og Poomsae sem fara áttu fram næsta mánuðinn falla niður eða þangað til að ástandið lagast. Gunnar Bratli nýráðinn landsliðsþjálfari hefur að þessu tilefni sent út ýtarlegt æfingarplan á alla þá sem mættu á seinustu úrtökur landsliðsins í bardaga og mun í framhaldinu senda æfingarmyndbönd  á iðkenndur og þjálfara þeirra. Við viljum biðja forráðamenn og þjálfara yngri iðkennda að tryggja að pósturinn hafi komist til skila og aðstoði þá ef eitthvað er óljóst. Einnig má senda póst á tki@tki.is ef spurningar vakna. Lisa Lents er einnig í nánum samskiptum við landsliðsfólk í poomsae og mun vera þeim til halds og trausts gegnum þessa tíma. Við vonum að þetta aðstoði afreksfólkið okkar til að halda fókus og æfa markvisst í gegnum þessa erfiðu tíma.