Íslandsmót og barnamót – úrslit
Kæru félagar,
Bestu þakkir fyrir mótið á laugardaginn. Alls kepptu 105 á báðum mótum frá flestum félögum. Eva Valdís Hákonardóttir, 9 kup í Ármann vann titilinn „keppandi mótsins“ á Íslandsmótinu með 19 stig og Victoría Ósk Anítudóttir, 3 kup í Keflavík sigraði titilinn „keppanda mótsins“ á barnamótinu. Einstaklega flottar stelpur og óskum við þeim innilega til hamingju með árangur og titla. Ármann sigraði sem félag mótsins á Íslandsmótinu og Keflavík á barnamótinu. Fljótlega auglýsum við mót fyrir þær greinar sem við frestuðum, stefnum á að það verði í nóvember.
Úrslit af báðum mótum á finna hér:
Íslandsmót og Barnamót í tækni 2011 Úrslit
kær kveðja Írunn