Íslandsmót í formum og bardaga 2022

By:

Íslandsmót TKÍ í bardaga og formum fer fram 5. Og 6. nóvember næst komandi. Keppt verður í formum 5. Nóvember og bardaga þann 6. Nóvember. Mótið verður haldið í Bjarkarhúsinu Haukahrauni 1 í Hafnarfirði. Keppnisgjald verður 4.500 fyrir eina grein en 7.000 ef keppt er í báðum greinum. Skráningar munu fara fram á síðunni tpss.eu. Boðsbréf með nánari upplýsingum mun berast mánuði fyrir mót.