Íslandsmeistaramótið í poomsae 3. nóvember 2013
Íslandsmeistaramótið í poomsae 3. nóvember 2013
Mótsfyrirkomulag fyrir lægri belti 9.-5.kup, (gult belti – blátt m/rönd) mun vera óbreytt frá því sem áður hefur verið, þ.e. keppendur velja sjálfir sín form, mest tveimur taegeuk yfir sína beltagráðu og minnst tveimur undir.
Skipt verður í þrjá flokka:
(C) 9.-5. Geup
(B) 4. – 1. Geup
(A) 1. dan og ofar
Móttstjóri áskilur sér rétt á að skipta C flokk upp í tvo flokka 9-7 geup og 6-5 geup ef fjöldi er nægur. Skipt verður eftir kyni í einstaklingshópum ef næg þátttaka er í hverjum hóp.
Dregið verður um í hvaða formum flokkar A og B keppa , og mun allur flokkurinn keppa í sömu formum. Fyrir flokk B munu verða dregin 2 form frá og með Taegeuk Sah-Jang til og með Poomse Koryo. Fyrir flokk A verða dregin 2 form frá og með Taegeuk Pal-Jang til og með Poomse Pyongwon. Formin verða dregin mánudag fyrir mót, þann 28. október 2013 og birt á vef TKÍ þann sama dag.
Keppt verður í einstaklings-, para- og hópa flokkum. Þátttakendur ráða sjálfir kynjasamsetningu í para- og hópakeppni og er aldursskipting annars vegar undir 18 ára og hins vegar yfir 18 ára. Í para og hópakeppni verða allir samkeppendur að vera skráðir í sama félag. Keppnisrétt í öllum greinum hafa þeir sem verða 12 ára á árinu. Skráningarfrestur er Þriðjudaginn 29. okt kl. 23:59. Félög senda inn eina skráningu með öllum sínum keppendum. (sjá meðfylgjandi skráningarblað)
Mótsgjald er kr. 2.500 fyrir eina keppnisgrein, kr. 3.000 fyrir tvær keppnisgreinar og 3.500 ef keppt er í þremur keppnisgreinum. Þátttökugjöld þarf að greiða inn á reikning tkí 515-26-50010. Kt. 500103-2050 og senda kvittun á netfang sambandsins tki@tki.is fyrir 1. nóvebmer 2013.
- Sæti (Gull) gefur 7 stig
- Sæti (Silfur) gefur 5 stig
- Sæti (Brons) gefur 3 stig
ATH! Ef keppandi gerir ekki rétt keppnisform (hærri flokkum) fær viðkomandi sjálfkrafa 0 í einkunn og engin verðlaun eða stig ef 3 eða færri eru í flokk.
Einstaklingskeppni:
Flokkar
Flokkur C Lægri belti (9.-5. Geup) – keppendur velja um form (2 form upp/niður út frá belti þess keppanda með hæstu beltagráðuna)
Flokkur B Rauðbelti (4.-1. Geup) – dregið um 2 form frá og með Taegeuk Sah-Jang til og með Poomse Koryo
Flokkur A Pooom/Dan (1. Dan / Poom) – dregið um 2 form frá og með Taegeuk Pal-Jang til og með Poomse Pyongwon
————————————————————————————————————————
Para og hópakeppni:
Flokkar
Flokkur C Lægri belti (9-5. Geup) – keppendur velja um form (2 form upp/niður út frá belti þess keppanda með hæstu beltagráðuna)
Flokkur B Rauðbelti (4.-1. Geup) – dregið um 2 form frá og með Taegeuk Sah-Jang til og með Poomse Koryo
Flokkur A Pooom/dan (1. Dan/ poom) – dregið um 2 form frá og með Taegeuk Pal-Jang til og með Poomse Pyongwon
————————————————————————————————————————–
Nánar um flokka og aldurskiptingu: Mótstjóri áskilur sér rétt til að sameina flokka ef þurfa þyikir ef næg þátttaka er ekki í öllum flokkum.
A Flokkur: 1 poom/Dan
Flokkur | Aldur | Annað |
undir 14 | 12 –14 | Skipt verður eftir kyni í einstaklingshópum ef næg þátttaka er í hverjum hóp |
undir 17 | 14 –17 | |
undir 29 | 18 –29 | |
undir 39 | 30 –39 . | |
undir 49 | 40 –49 . | |
undir 59 | 50 –59 . | |
yfir 59 | 60+ | |
Para undir 29 | 14 –29 | |
Para yfir 29 | 30+ | |
Hópa undir29 | 14 –29. | |
Hópa yfir 29 | 30+ |
B Flokkur 4th kup – 1th kup
C Flokkur 9th kup – 5th kup (C flokk verður skipt upp í 9-7 kup og 6-5 kup ef næg þáttaka er)
Flokkur | Aldur | Beltagráða | Annað |
C | 12 – 14 | 9 |
Skipt verður eftir kyni í einstaklingshópum ef næg þátttaka er í hverjum hóp |
B | 12 – 14 | 4. –1.kup | |
C | 14 – 17 | 9 |
|
B | 14 – 17 | 4. –1.kup | |
C | 18+ | 9 |
|
B | 18+ | 4. –1.kup | |
Para, C | 12 – 17 | 9 |
|
Para, B | 12 – 17 | 4. –1.kup | |
Para, C | 17 – 29 | 9. –5.kup | |
Para, B | 17 – 29 | 4. –1.kup | |
Para, C | 30+ | 9. –5.kup | |
Para, B | 30+ | 4. –1.kup | |
Hópa | Engin aldurstakmörk | 9 |
ATH! Þessi flokkaskipting er sú sem löggð verður til hliðsjónar og leitast verður eftir að halda þessum flokkum. En það er alveg ljós að sameina verður flokka þegar skráning liggur fyrir.
Dómarar
Yfirdómar er Hildur Baldursdóttir. Félög eru skyldug til að senda 1 dómara fyrir allt að 5 keppendur, 2 dómara fyrir 6-10 keppendur, 3 dómara fyrir 11-20 keppendur, 4 dómara fyrir 21-30 keppendur, 5 dómara fyrir fleiri en 30 keppendur. Mótshaldari skal sjá til þess að félög sendi dómara. Ef félag hefur ekki tök á að senda dómara má senda starfsmenn í stað þeirra, að höfðu samráði við, og með samþykki, mótshaldara. Ef félag kemur ekki með dómara eða stafsmenn skal viðkomandi félag greiða kr. 20.000,- fyrir hvert stöðugildi sem ekki er útvegað, og er það til að mæta kostnaði við að fá aðra til að koma til starfa í þeirra stað. Mótshaldari mun skipuleggja dómaramál þannig að a.m.k. 5 dómarar séu á hverju gólfi og frá eins mörgum félögum og við verður komið.
Stjórn TKÍ
Formin á Íslandsmeistaramótinu 3 nóv 2013:
Einstaklings keppni:
Flokkur B Rauðbelti (4.-1. Geup) – Yook jang og Pal jang
Flokkur A Pooom/Dan (1. Dan / Poom) – Pal jang og Koryo
Para og hópakeppni:
Flokkur B Rauðbelti (4.-1. Geup) – Yook jang og Chil jang
Flokkur A Pooom/dan (1. Dan/ poom) – Pal jang og Keumgang