HM í bardaga
Um miðjan maí verður haldið heimsmeistaramót í bardaga í Manchester í Englandi.
TKÍ hefur valið landsliðsmennina Kristmund Gíslason og Ágúst Kristinn Eðvarðsson til að keppa fyrir hönd Íslands á mótinu og er það mikið tilhlökkunarefni að sjá þessa frábæru íþróttamenn etja kappi við þá bestu í heiminum.
TKÍ óskar þeim til hamingju með valið og óskar þeim ennfremur góðs gengis á mótinu.