GULL OG SILFUR

By:

Núna um helgina fór fram Polish Open G-1, eitt af sterkustu G-1 mótunum í Olympísku Taekwondo sem gildir til stiga á heimslistanum. Á mótinu kepptu rúmlega 1000 aðilar á háu getu stigi allt frá Olympíu, heims og evrópumeistara verðlaunahöfum til þeirra sem eru að byrja að færa sig inn á hæðsta stig í bardaga.Mótið fór fram í Varsjá. Íslensku landsliðsmennirnir Leo Anthony Speight og Guðmundur Flóki Sigurjónsson kepptu á vegum Íslands á mótinu undir leiðsögn Richard Fairhurst landsliðsþjálfara.

Það með má sanni segja að helgin hafi verið í senn æsispennandi og mögnuð hjá þeim félögum og í raun sé um söguleg úrslit að ræða þegar kemur að Íslensku Taekwondo.  Guðmundur Flóki gerði sér lítið fyrir og vann Gull í Senior -80 kg (18 manna flokki) og vann meðal annars þá sem sitja í 5. og 9. sæti heimslistans. Leo Speight tryggði sér svo silfur í stærsta flokki mótsins Senior -68 (31. manna flokkur). Þetta er sennilega besti árangur íslensks landsliðs í Taekwondo frá upphafi þó svo að þeir hafi bara verið tveir að keppa.

Næstu mót liðsins eru svo Evrópumót smáþjóða, Riga Open og svo HM í Kína í lok Október. 

 Guðmundur Flóki byrjaði daginn á að fara á móti Pólskum silfurverðlaunahafa frá HM Junior og sigraði hann örugglega 2-0. Næst fór Flóki á móti fyrnasterkum keppanda frá Úkraínu sem er í 9. sæti heimslistans. Bardaginn var æsispennandi eftir að hann tapaði fyrstu lotu kom hann til baka og náði að vinna tvær næstu og bardagann í heild 2-1. Næst fór hann svo á móti keppanda frá Azerbajan sem hann vann 2-0 og var því kominn í úrslita bardagann. Í úrslitum mætti hann svo heimsmeistara unglinga frá Króatíu sem situr einnig í 5. Sæti heimslista fullorðinna. Flóki gerði sér lítið fyrir og sigraði hann eftir æsispenndi bardaga 2-1 og endaði því dainn með gull sem er magnaður árangur og ekki síst þar sem hann er ennþá á seinasta ári í Junior. Þetta er 3. G medalía hans á árinu og hans fyrsta Gull sem senior.

Leo byrjaði daginn á að fara á móti Pólverja sem hann hafði tapað fyrir á Presidents Cup á seinasta ári. Í þetta skiptið var það hins vegar Leo sem stóð uppi sem sigurvegari þar sem hann sigraði hann 2-1. Næst fór hann á móti keppanda frá Saudi Arabíu sem hafði unnið tvo sterka keppendur fyrr um daginn. Eftir æsispennandi bardaga stóð Leo upp sem sigurvegari 2-1. Í undanúrslitum mætti hann svo Dana sem hafði þegar unnið silfurverðlaunahafa frá seinasta US open. Leo gerði sér lítið fyrir og vann hann einnig 2-1 og því kominn í úrslit. Í úrslitum mætti hann svo sterkum Spánverja en varð að játa sig sigraðan 2-0 en endaði daginn með silfur sem er glæsilegur árangur á svona sterku móti. Þetta er fjórða G medalía Leo á árinu og sú tíunda í heildina sem er það langmesta af öllum Íslendingum. 

Bardagar Guðmundar Flóka:

Bardagi 1:  5:06:33

Bardagi 2:  7:04:09

Bardagi 4:  9:09:48

Bardagi 3:  8:40:22

Bardagar Leo:

Bardagi 1:  3:42:40

Bardagi 2:  7:22:48

Bardagi 3: 8:27:26

Bardagi 4: 8:56:53