Guðmundur Flóki með senior Brons

By:

Guðmundur Flóki með brons á sterku G-1 alþjóðlegu  stigamóti Luxembourg Open í -80 senior, í tuttugu manna flokki. Um 800 keppendur voru skráðir til leiks.

Taekwondo landslið Íslands í bardaga keppti í gær á Luxembourg Open G-1 alþjóðlegu stiga móti. Að þessu sinni voru það þeir Guðmundur Flóki Sigurjónsson og Leo Anthony Speight sem kepptu fyrir Íslands hönd. 

Flóki sat hjá í R32 og mætti svo sterkum keppanda frá Tékklandi í R16 sem hann sigraði 2-1, næst í átta manna úrslitum fór hann á móti Breta sem hann sigraði einnig 2-1, í undanúrslitum mætti hann svo Belga sem hann tapaði naumlega fyrir 1-2. Flóki endar mótið með Bronsi sem er alveg geggjaðir árangur sérstaklega með það í huga að hann er ennþá Junior (er á seinasta ári). Það eru bjartir tímar framundan hjá bardaga landsliðinu.

Leo keppti svo í 29 manna flokki í -68. Hann endaði daginn í 5 sæti.