EM í bardaga – Cadet og Junior

By:

Chago Rodriguez valdi eftirtalda aðila til að keppa fyrir hönd Íslands á komandi Evrópumeistaramótum sem haldin verða í Castillon á Spáni. 

Wiktor Sobczynski og Iðunn Anna Eyjólfsdóttir voru valin til að fara á European Cadet Championships sem stendur yfir frá 1-3 október. Wiktor (-65) keppir þann 2. október en Iðunn Anna ákvað að fara ekki að þessu sinni.

Þeir Andri Sævar Arnarsson og Eyþór Jónsson voru valdir til að fara á European Junior Championships sem stendur yfir frá 4-6. október. Andri (-73) keppir þann 6. október og Eyþór (-68) keppir þann 5. október.

TKÍ óskar þessum aðilum til hamingju með valið og góðs gengis á mótinu.