Bikarmót og ársþing TKÍ

By:

Stjórn TKÍ hefur í samráði við mótanefnd tekið þá ákvörðun að aflýsa Bikarmóti 3 sem átti að halda helgina 18-19 apríl næstkomandi í Mosfellsbæ. Þetta er gert í ljósi ástandsins í samfélaginu með hagsmuni allra að leiðarljósi. Við vonum að fólk sýni þessu skilning. Hvað varðar Bikarmeistara 2019-2020 er beðið eftir leiðbeiningum frá ÍSÍ um hvernig þeim málum verði háttað.

Einnig mun ársþing TKÍ sem fara fram átti 21. apríl vera frestað. Ný dagsetning þingsins verður auglýst um leið og aðstæður skýrast.