Bikarmót í Poomsae aflýst

By:

Kæru félagar, okkur þykir leiðinlegt að tilkynna að því miður hefur ekki náðst að manna dómara fyrir Bikarmót 1 í Poomsae. Þar af leiðandi neyðumst við því að hætta við það mót. Stjórn TKÍ hefur hins vegar tekið þá ákvörðun að halda mót í staðin fyrir þá minior og cadet keppendur sem skráðir voru til keppni með þeim 3 dómurum sem hafa gefið kost á sér. Stjórn sambandsins er að vinna í dómaramálum og verður með námskeið á næstunni. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært um að mæta á þau námskeið og í framhaldi taka þátt í mótahaldi sambandsins. Bikarmót 1 í bardaga mun fara fram eins og auglýst.