Auka fundur vegna ársþings TKÍ

By:

Heil og sæl,

Stjórn TKÍ vill minna á auka fundinn vegna ársþings TKÍ sem haldinn verður föstudaginn 26. apríl 2019 kl. 19.30 í sal E, í höfuðstöðvum ÍSÍ, að Engjavegi 6 104 Reykjavík.
Farið verður yfir 8. og 9. liði þingsfundar sem eru:

  • Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.
  • Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.

Með kveðju,
Stjórn TKÍ