Ársþing TKÍ 17. apríl 2023 – seinna fundarboð

By:

Ársþing TKÍ verður haldið mánudaginn 17. april kl. 18:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, 3. hæð. Engjaveg 6, 104 Reykjavík

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 8. grein laga TKI.

Endurnýjuð afreksstefna TKI verður lögð fyrir þingið, samkvæmt beiðni ÍSÍ.

Dagskrá þingsins verður skv. lögum og sem hér segir:

1. Þingsetning.
2. Kosning 1. og 2. þingforseta.
3. Kosning 1. og 2. þingritara.
4. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.
5. Ávörp gesta.
6. Álit kjörbréfanefndar.
7. Skýrsla stjórnar lögð fram.
8. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.
9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.
10. Kosning þingnefnda.
11. Þingnefndir starfa.
12. Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.
13. Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem innheimtist af félögum/deildum miðað við skráða iðkendur árið á undan skv. starfsskýrslum ÍSÍ.
14. Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu.
15. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu.
16. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og þingmeirihluti leyfir.
17. Kosningar:
– stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein laga TKÍ
– 1 skoðunarmaður reikninga til tveggja ára í senn. Á fyrsta þingi sambandsins sem þessi lög eru í gildi, skal þó kjósa 2 skoðunarmenn reikninga, annan til eins árs og hinn til tveggja ára.
– fastanefndir sem starfa milli taekwondoþinga.
– fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.
18. Þingslit.

Engar tillögur að lagabreytingum verða lagðar fram á þinginu. Önnur mál sem lögð verða fram á þinginu eru:

  • Afreksstefna TKÍ

Athugið að kosið verður um tvo aðalmenn í stjórn sambandsins skv. lögum sambandsins.

Stjórn TKÍ