Ársþing Taekwondosamband Íslands 2025

By:


Ársþing TKÍ árið 2025 verður haldið þann 7. maí 2022 kl. 18.00 í fundarsal B og C í höfuðstöðvum ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Dagskrá þingsins verður skv. lögum og sem hér segir:

1.    Þingsetning.
2.    Kosning 1. og 2. þingforseta.
3.    Kosning 1. og 2. þingritara.
4.    Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.
5.    Ávörp gesta
6.    Álit kjörbréfanefndar.
7.    Skýrsla stjórnar lögð fram.
8.    Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.
9.    Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.
10.    Kosning þingnefnda.
11.    Þingnefndir starfa.
12.    Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.
13.    Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem innheimtist af félögum/deildum miðað við skráða iðkendur árið á undan skv. starfsskýrslum ÍSÍ.
14.    Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu.
15.    Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu.
16.    Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og þingmeirihluti leyfir.
17.    Kosningar:
        a.    tveir aðilar kosnir í aðalstjórn og þrír varastjórn, sbr. 10. grein laga TKÍ
        b.    1 skoðunarmaður reikninga til tveggja ára í senn. 
        c.    nefndir og fulltrúar sem starfa milli taekwondoþinga.

–              Mótanefnd

–              Tækninefnd

–              Landsliðsnefnd í Poomsae

        d.    fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.
18.    Þingslit.