Afreksstarf TKÍ í sparring

By:

TKÍ vill benda á að sambandið er stanslaust að leita að hæfileikaríkum einstaklingum til að styrkja afrekshópana. Landsliðsnefnd og landsliðsþjálfari sambandsins í bardaga munu fylgjast með á viðburðum sambandsins og geta boðið þeim aðilum sem skara fram úr pláss í afrekshópum sambandsins. Nýr landsliðsþjálfari í sparring hefur meðal annars beðið um að teknir verði upp bardagar (Senior, Junior) á næsta bikarmóti svo hægt sé að meta keppendur. Ef einhverjir vilja ekki láta taka sig upp er viðkomandi bent á að hafa samband við tki@tki.is. Myndböndin verða einungis notuð sem vinnuskjöl fyrir landsliðþjálfara og nefnd.