17 keppendur á Scottish Open komu heim með 37 verðlaun
18 Gull, 11 Silfur og 8 Brons á Scottish Open, frábær árangur íslensku keppendanna. Yfir 40 lið voru á mótinu og varð ísland í öðru sæti í heildarstigum, fyrstasæti í liðakeppni í tækni og í öðrusæti í liðakeppni í bardaga.
17 keppendur úr íslenska taekwondo landsliðinu kepptu á Skottish Open mótinu um helgina. Keppendurnir komu úr Keflavík, Aftureldingu og Björkunum. Mótið var haldið í grennd við Edininburg og voru rúmlega 40 lið sem tóku þátt. Skemmst er frá því að segja að allir íslensku keppendurnir fengu verðlaun og sumir keppendur fengu nokkur verðlaun. Keppt var í bardaga, einstaklingstækni, paratækni og hópatækni. Sumir keppendur gátu jafnvel keppt í tveimur flokkum í bardaga þegar það átti við. Á laugardegi kepptu lægri belti í bardaga og hærri belti í tækni. Á sunnudegi var það svo öfugt þannig að keppendur gætu keppt í báðum greinum ef þeir óskuðu eftir því. Íslendingarnir vöktu athygli annarra keppenda, þjálfara og dómara fyrir góða tækni, íþróttamannslega hegðun, kurteisi og keppnisskap.
Í lok mótsins var tekin saman heildarárangur fyrir tækni, bardaga og svo samanlagður árangur beggja greina og gefnar viðurkenningar. Íslenska landsliðið var með besta árangur allra liða í tækni, annan besta árangur liða í bardaga og annan besta samanlagðan árangur. Það er ótrúlega góður árangur sérstaklega í ljósi þess að mörg önnur lið voru mun stærri en íslenska liðið. Það var liðið Manchester Sport taekwondo sem sigraði samanlagðan árangur og í bardaga en það lið skartaði rúmlega 40 keppendum, meira en tvöfalt meira en íslenska liðið.
Árangur íslenska liðsins
Gull – 18
Silfur – 11
Brons – 8
Adda Paula Ómarsdóttir – Silfur í einstaklingstækni, gull í paratækni
Arnar Bragason – Silfur í bardaga
Ágúst Kristinn Eðvarðsson – Gull í bardaga og silfur í einstaklingstækni.
Ástrós Brynjarsdóttir – Gull í bardaga, gull í einstaklingstækni, gull í paratækni
Bjarni Júlíus Jónsson – Gull í bardaga, brons í bardaga, brons í einstaklingstækni og brons í hópatækni.
Daníel Aagard Nielsen Egilsson – Gull í bardaga, gull í bardaga og gull í einstaklingstækni
Daníel Arnar Ragnarsson – Brons í einstaklingstækni
Erla Björg Björnsdóttir– Gull í bardaga og silfur í bardaga
Helgi Rafn Guðmundsson – Gull í einstaklingstækni og silfur í bardaga
Herdís Þórðardóttir – Gull í bardaga
Hrafnhildur Rafnsdóttir – Brons í bardaga
Karel Bergmann Gunnarsson – Silfur í bardaga, Silfur í einstaklingstækni og silfur í hópatækni
Kolbrún Guðjónsdóttir – Gull í einstaklingstækni
Kristmundur Gíslason – Gull í bardaga og silfur í hópatækni
Svanur Þór Mikaelsson – Gull í bardaga, gull í paratækni, silfur í einstaklingstækni og brons í hópatækni
Sverrir Örvar Elefsen – Gull í bardaga, gull í paratækni, silfur í hópatækni og brons í einstaklingstækni.
Ægir Már Baldvinsson – Gull í bardaga, silfur í einstaklingstækni, brons í bardaga og brons í hópatækni
Efst frá vinstri: Ægir Már Baldvinsson, Sverrir Örvar Elefsen, Kristmundur Gíslason. Mið frá vinstri: Helgi Rafn Guðmundsson , Herdís Þórðardóttir, Erla Björg Björnsdóttir, Arnar Bragason, Svanur Þór Mikaelsson, Hrafnhildur Rafnsdóttir, Bjarni Júlíus Jónsson, Karel Bergmann Gunnarsson. Fremstaröð frá vinstri: Daníel Arnar Ragnarsson, Adda Paula Ómarsdóttir, Ástrós Brynjarsdóttir, Daníel Aagard Nielsen Egilsson, Ágúst Kristinn Eðvarðsson, Kolbrún Guðjónsdóttir