Ungir & Efnilegir í desember

By:

Dagskrá Ungra & Efnilegra í desember

Hópurinn æfir helgina 9. – 10. desember nk. og fara allar æfingar fram í Mudo Gym, Víkurhvarfi 1.

Allir iðkendur á aldrinum 10-14 ára eru velkomnir í U&E. Mætið með hlífar á bardagaæfingar og í hreinum og snyrtilegum dobok á formæfingar.

Þema næstu helgi verður skref og notkun þeirra í bardaga. Í formi verður farið yfir grunnatriði fyrir keppni, stöður og grunnatriði dómgæslu.

Dagskrá:

Laugardagur 9. desember

kl. 10.00-11.30 U&E bardagatækni, nobok kl. 12.30-14.00 U&E bardagatækni, nobok

Sunnudagur 10. desember

kl. 11.00-13.00 U&E Form (Poomsae) dobok