Taekwondoþing 2024

By:

Síðara fundarboðið á  23. Taekwondoþing sem haldið verður þann  9. apríl 2024

Þingstaður: fundarsalir B og C, þriðja hæð í húsi ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Þingsetning kl. 17.00

Hér er dagskrá þingsins ásamt tillögu um lagabreytingu frá stjórn TKÍ. 

Einnig er óskað eftir aðilum í eftirfarandi nefndir sambandsins: Mótnefnd, Landsliðsnefnd í formum, Landsliðsnefnd í bardaga og Tækninefnd. 

Dagskrá þingsins verður skv. lögum og sem hér segir:

1.     Þingsetning.

2.     Kosning 1. og 2. þingforseta.

3.     Kosning 1. og 2. þingritara.

4.     Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.

5.     Ávörp gesta

6.     Álit kjörbréfanefndar.

7.     Skýrsla stjórnar lögð fram.

8.     Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.

9.     Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.

10.  Kosning þingnefnda.

11.  Þingnefndir starfa.

12.  Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.

13.  Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem innheimtist af félögum/deildum miðað við skráða iðkendur árið á undan skv. starfsskýrslum ÍSÍ.

14.  Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu.

15.  Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu.

16.  Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og þingmeirihluti leyfir.

17.  Kosningar:

a.     stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein laga TKÍ

b.     1 skoðunarmaður reikninga til tveggja ára í senn. 

c.     fastanefndir sem starfa milli taekwondoþinga.

d.     fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.

18.  Þingslit.

Stjórn TKÍ