Taekwondoþing 2024

By:

Taekwondoþing 2024 var haldið þriðjudaginn 9. apríl síðastliðinn. Góð mæting var á þingið sem fram fór í sal C í húsnæði ÍSÍ . Sylvía Ósk Speight varaformaður setti þingið. Úlfur H. Hróbjartsson var kjörinn fundarstjóri og fundarritari Atli Þorsteinsson. Mjög góð  stemmning var á þinginu og var eitt það jákvæðasta og léttasta í manna minnum. 

Fram fóru venjuleg aðalfundarstörf þar sem Valdimar Leó  Friðriksson framkvæmdarstjóri TKÍ fór yfir ársreikning 2023 og fjárhagsáætlun 2024. Kosin var nýr skoðunarmaður reikninga til tveggja ára, Emma Ingibjörg Valsdóttir. Hún og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir eru því skoðunarmenn næsta árs. 

Því næst var varið í freka umfangsmiklar lagabreytingar sem stjórn sambandsins lagði fram og voru þær samþykktar með breytingum.

Sjálfkjörið var í allar stöður stjórnar sem kjósa átti um.  

Nýr formaður til tveggja ára er Sylvía Ósk Speight, tveir stjórnarmenn til tveggja ára eru Gunnar Hákonarson og Sveinn Speight. Þrír varamenn til eins árs  eru Ragnheiður Gísladóttir, Selma Hafliðadóttir og Grettir Einarsson.