Taekwondosamband Íslands, TKÍ, auglýsir stöðu landsliðsþjálfara í formum (poomsae) lausa til umsóknar

By:

Taekwondosamband Íslands, TKÍ,  auglýsir stöðu landsliðsþjálfara í formum (poomsae) lausa til umsóknar.  Umsækjendur þurfa að hafa að minnsta kosti [2.] dan svartbelti.  Ráðið verður í stöðuna til 2ja ára.  Við mat á umsóknum verða eftirfarandi hlutir m.a. hafðir til hliðsjónar:

Keppnis- og þjálfunarreynsla innanlands sem utan
Tengsl við taekwondo sérsambönd annarra landa
Framtíðarsýn á þróun íþróttarinnar á Íslandi

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Richard Má Jónsson, formann TKÍ, fyrir 20. ágúst 2013 í gegnum netfangið tki@tki.is .