Ingibjörg vinnur brons á Portugal Open G-1

By:

Um helgina tók íslenska landsliðið í taekwondo þátt í Portugal Open, alþjóðlegu G-1 stigamóti þar sem yfir 1.000 keppendur voru skráðir til leiks.Mótið fór fram í Porto

Ingibjörg Erla Grétarsdóttir keppti í -62 kg flokki fullorðinna, en alls voru 20 keppendur skráðir í flokkinn. Hún sat hjá í 32 manna úrslitum en mætti síðan spænskum keppanda í 16 manna úrslitum. Þar  vann hún öruggan 2–0 sigur.

Í átta manna úrslitum mætti Ingibjörg sterkum keppanda frá Frakklandi. Eftir spennandi viðureign tryggði hún sér 2–1 sigur og sæti í undanúrslitum.

Þar mætti hún firnasterkum keppanda frá Ekvador og varð að játa sig sigraða. Keppandinn frá Ekvador vann síðar úrslitaviðureignina og stóð uppi sem sigurvegari mótsins í flokknum.

Ingibjörg Erla tryggði sér þar með bronsverðlaun eftir frábæra frammistöðu gegn sterkum alþjóðlegum keppendum. Árangurinn er afar glæsilegur á jafn fjölmennu og sterku móti og Portugal Open og veitir henni mikilvæg stig á heimslista World Taekwondo.

Auk Ingibjargar Erlu kepptu Guðmundur Flóki Sigurjónsson og Leo Anthony Speight fyrir hönd Íslands á mótinu. Íslensku keppendurnir kepptu allir undir stjórn Rich Fairhurst, landsliðsþjálfara Íslands í bardaga. Þetta eru þriðju alþjóðlegu verðlaun landsliðsins á þessu ári þar sem Flóki tryggði sér einnig brons á British open og svo vann Leo silfurverðlaun á Bosnia Open.

Taekwondosamband Íslands óskar Ingibjörgu Erlu innilega til hamingju með bronsverðlaunin og íslenska hópnum öllum til hamingju með frammistöðuna á mótinu.

Hér er hægt að sjá bardaga Ingu  

R16 1:52:10

QF   4:21:31

SF   6:36:50

https://www.youtube.com/watch?v=txtCMgMkssI