HM í Bardaga 15.-19. Maí

By:

Þá er heimsmeistarakeppninni í Senior í bardaga sem fram fór í Manchester í Englandi dagana 15.-19. maí lokið. TKÍ sendi þrjá keppendur á mótið, þá Kristmund Gíslason, Meisam Rafiei og Ágúst Kristinn Eðvarðsson. Árangur liðsins að þessu sinni stóð því miður ekki undir væntingum en engu að síður erum við stolt af okkar keppendum. Landsliðsnefnd sem sett verður á laggirnar á næstu vikum mun hafa í nógu að snúast við að endurskipuleggja landsliðs og afreksstarf TKÍ þannig að árangur til framtíðar sé hámarkaður. Við vitum að með bættu starfi þar sem hugsað verður fram í tímann munu keppendur okkar eiga bjarta framtíð á alþjóðlegum vetfangi undir dyggri handleiðslu okkar besta fólks. Við horfum björtum augum fram á veginn og hlökkum til nýrra áskorana. Áfram Ísland