Gott gengi á British Open í bardaga

By:

Þetta er búið að vera flott helgi hjá landsliðinu og úrvalsliðinu á British Open G-1 í Manchester.
Á laugardag kepptu landsliðsfólkið Ingibjörg Erla og Guðmundur Flóki í senior flokki og uppskáru bæði G-Brons undir leiðsögn Rich Fairhurst landsliðsþjálfara. Ingibjörg í -62 kg flokki þar sem voru 21 keppandi. Inga sat hjá í fyrstu umferð en mætti svo keppanda frá Bretlandi sem hún sigraði 2-0. Því næst mætti hún svo keppanda frá Ítalíu sem hún sigraði einnig 2-0. Í undanúrslitum mætti hún svo fyrnasterkum keppanda frá Bandaríkjunum.
Sú bandaríska vann bardagann og fór svo alla leið og vann Gull. Guðmundur Flóki fékk svo einnig brons í -80 kg senior flokki þar sem 13 keppendur voru skráðir til leiks. Flóki byrjaði einnig daginn á að sitja hjá. Fór svo í fyrsta bardaga á móti keppanda frá Bretlandi sem hann sigraði örugglega. Því næst mætti hann landsliðsmanni frá Bretlandi í þetta skiptið hafði bretinn betur og Flóki endaði með Brons.
Í dag sunnudag var svo komið að úrvalsliðinu sem keppti í Junior eða E parti mótsins. Tveir keppendur úr úrvalsliðinu okkar voru skráðir til leiks og stóðu sig mjög vel undir leiðsögn Rich landsliðsþjálfara. Jón Þór Sanne keppti í Junior -59 flokki þar sem 15 keppendur voru skráðir til leiks. Jón Þór byrjaði daginn á að sigra breta í fyrsta bardaga 2-0. Hann gjörsigraði svo Frakka í 8 manna úrslitum 2-0. Í undanúrslitum mætti hann svo keppanda frá Noregi sem hann vann 2-1 eftir æsispennandi lotur. Í úrslitum var svo komið að keppanda frá Bandaríkjunum. Bardaginn var æsispennandi en því miður varð Jón Þór að játa sig sigraðan en tekur heim E-silfur eftir frábæran dag. Það má því með sanni segja að það séu spennandi tímar framundan með alla þessa flottu keppendur. Til hamingju öll