Flóki keppir á sínu öðru Grand Prix móti

By:

Nú er komið að því að Guðmundur Flóki keppi á sínu öðru Grand Prix mót. Hann er fyrsti Íslendingurinn sem nær að tryggja sig inn á Grand Prix mót þar sem aðeins þeir bestu fá að keppa. Í þetta skiptið fer mótið fram í Muju í Kóreu. Flóki er mættur þangað ásamt Rich landsliðsþjálfara. Hann keppir á sunnudaginn í -80 flokki eins og venjulega. Við munum pósta öllum upplýsingum á Facebook síðu sambandsins um leið og þær berast. Þess má geta að hann hefur einnig tryggt sig inn á mót 3 sem haldið verður í París. Þetta eru spennandi tímar fyrir Íslenskt Taekwondo. Áfram Ísland 🙂