EM Cadet 2026

By:

Richard Fairhurst landsliðsþjálfari hefur valið Heiðu Dís Helgadóttur til að taka þátt í Evrópumóti cadet sem haldið verður í Búkarest í Rúmeníu.

Þátttakan er gott tækifæri fyrir Heiðu Dís til að öðlast reynslu og kynnast alþjóðlegu keppnisumhverfi.

Við hjá Taekwondosambandinu óskum Heiðu Dís innilega til hamingju með valið og vonum að hún njóti undirbúningsins og þátttökunnar á mótinu.