Dómaranámskeið TKÍ

By:

Laugardaginn 1. Júní hélt nýskipuð Dómaranefnd TKÍ sitt fyrsta námskeið í dómæslu í Kyriogi. Kennari var yfir og alþjóðadómarinn Malsor Tafa. Eftir námskeiðið útskrifuðust fyrstu 8 aðilarnir með PP dómara landsréttindi í Kyroigi. Á meðfylgandi mynd má sjá glæsilegan hóp nýútskrifaðra dómara sem munu nýtast vel á komandi mótum hérlendis. Dómararnir á myndinni  eru f.v. Vigdís Helga Eyjólfsdóttir, Ágúst Kristinn Eðvarðsson, Róbert Mikael Óskarsson, Sigurjón Bergur Eiríksson, Malsor Tafa, Eyþór Jónsson, Andri Sævar Arnarsson, Jóhann Gíslason og Haukur Valgeirsson. TKÍ óskar þeim innilega til hamingju með áfangann