Dómaranámskeið í bardaga 3. mars 2024

By:

Sunnudaginn 3. mars verður haldið dómaranámskeið í bardaga á vegum TKÍ. Malsor Tafa, yfirdómari sambandsins, mun vera með námskeiðið í Björk, Haukahrauni 1 Hafnarfirði.

Dagskrá:
11:00 – 13:00 Bóklegt
13:00 – 13:30 Hádegispása
13:30 – 15:30 Bendingar
15:30 – 16:30 Bardagastjórnun
16:30 – 17:00 Skriflegt próf
17:00 – 17:15 Skírteini afhent

Allir 17 ára og eldri með 4. kup eða hærra eru velkomnir. Til að skrá sig skal senda póst á kyorugi.ref@tki.is með upplýsingum um nafn, aldur og belti. Ef einhverjar spurningar vakna má senda þær á sama netfang.

Þátttakendur skulu mæta í Dobok, og Taekwondo skóm ef þeir eiga þá til.