Ungir og Efnilegir úrtökuhelgi 9.-10. Sept

By:

Nú er allt að fara á fullt hjá okkur og eru bæði landsliðin að fara á fullan kraft ásamt U&E.

Allir iðkendur á aldrinum 9-13 ára eru velkomnir á úrtökur fyrir hóp U&E veturinn 2023-’24. Helgina 9.-10. sept.

Mæting í dobok og með hlífar á sparringæfingum. Allar æfingar fara fram í Mudo Gym, Víkurhvarfi 1 Kópavogi. Æfingarnar eru haldnar á vegum TKÍ og munu verða mánaðarlega í vetur. Allir eru hvattir til að mæta og við hvetjum einnig félög til að sækja um að fá að halda æfingarnar á komandi tímabili.

Dagskrá:

Laugardagur:

10.00-11.30 Bardagi

14.00-15.30 Form

Sunnudagur:

10.00-11.30 Bardagi

12.00-13.30 Form

Allar nánari upplýsingar sigursteinn@taekwondo.is