Dómaranámskeið í formum 19 og 20. maí

By:

Þann 19. og 20. maí nk. mun Jesper Pedersen mun halda dómaranámskeið í formum samhliða landsliðsæfingum í formum og Poomsaemóti TKÍ sem haldið verður sömu helgi.

Jesper mun kenna á föstudeginum samhliða landsliðæfingu, fylgjast með dómurum á laugardeginum á Poomsaemótinu og kenna eftir mótið samhliða landsliðsæfingu.

Kröfur Jesper um þá sem eiga erindi á námskeiðið er að einstaklingur:

  • þekki öll formin
  • sé 17 ára með 1. dan eða 18 ára með 1. kup.

Þeir sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði en telja sig hafa nægilegan skilning og þekkingu á öllum formum og dómgæslu eru velkomnir. Hinsvegar munu þeir einstaklingar ekki fá dómararéttindi fyrr enn þeir uppfylla ofangreindar kröfur.

Einstaklingar sem mæta á námskeiðið skulu klæðast:
dómarafötum. Svört jakkaföt, hvít skyrta, bindi og hvíta skó. Einnig skal mæta með Dobok á allar æfingar.

Nánari tímasetning og staðsetning kemur síðar.

Vonumst til að sjá sem flesta.