Fallin er frá góður félagi.

By:
Inga Eyþórsdóttir F. 18.07.1971 – D.13.01.2023. Mynd:Spessi

Fallinn er frá góður félagi úr taekwondofjölskyldunni.

Núna í vikunni barst okkur sú sorgarfrétt að Hólmfríður Inga Eyþórsdóttir (Inga í Ármann) hafi fallið frá langt fyrir aldur fram. Inga lést föstudaginn 13. janúar eftir erfið veikindi. Inga hefur verið áberandi í starfi sambandsins undanfarin ár bæði sem stjórnarmaður sem og gjaldkeri. Einnig kom hún mikið að starfi í kringum Poomsae landsliðið.  Hennar verður sárt saknað og þökkum við fyrir allt það góða starf sem hún kom að. Taekwondosamband Íslands sendir Eyþóri Atla, Ingileifu og fjölskyldunni hennar innilegar samúðarkveðjur.