TKÍ leitar að þjálfara fyrir U&E í bardaga og formum
Taekwondosamband Íslands (TKÍ) auglýsir eftir þjálfara fyrir Unga & Efnilega í bardaga og formum.
Hlutverk þjálfara er að þjálfa og þróa Unga & efnilega iðkendur. Skipuleggja og vera með æfingar einu sinni á mánuði. Landsliðsþjálfarar munu eiga í góðum samskiptum við þjálfara U&E til að tryggja hnökralausa og jákvæð umskipti milli yngri og eldri stiga.
TKÍ leita að einstaklingum sem:
- hafa ástríðu fyrir íþróttinni,
- hafa reynslu í að þjálfa bardaga og form.
- er vel að sér í nýjustu reglum og tækni í bardaga og formum
- hafa hæfni til að vinna á skipulegan og markvissan hátt
- er góður í samskiptum, getur viðhaldið góðum samböndum
- er uppfærð með þjálfun og þjálfunaraðferðir
Það sem TKÍ getur boðið:
- Föst laun: rætt nánar eftir að umsóknarfresti lýkur.
Umsóknarfrestur: 10. september 2022.
Vinsamlegast sendið inn umsókn í tölvupósti á: tki@tki.is