Síðara fundaboð ATH breytt dagsetning

By:

Komið þið sæl, vegna óviðráðanlegra aðstæðna er þörf á að fresta ársþingi
TKÍ sem fara fram átti á morgun, 27. maí, til fimmtudagsins 10. Júní 2021.
Að neðan er uppfært síðara fundarboð:

Ársþing TKÍ árið 2021 verður haldið þann 10. júní 2021 kl. 17.00 í
höfuðstöðvum ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Dagskrá þingsins verður skv. lögum og sem hér segir:

1.    Þingsetning.
2.    Kosning 1. og 2. þingforseta.
3.    Kosning 1. og 2. þingritara.
4.    Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.
5.    Ávörp gesta
6.    Álit kjörbréfanefndar.
7.    Skýrsla stjórnar lögð fram.
8.    Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar.
9.    Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.
10.    Kosning þingnefnda.
11.    Þingnefndir starfa.
12.    Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.
13.    Þjónustugjald ákveðið. Þjónustugjaldið er nefskattur, sem
innheimtist af félögum/deildum miðað við skráða iðkendur árið á undan skv.
starfsskýrslum ÍSÍ.
14.    Tillögur um breytingar á lögum TKÍ teknar til umræðu og afgreiðslu.
15.    Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og
afgreiðslu.
16.    Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og
þingmeirihluti leyfir.
17.    Kosningar:
         a.    stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein laga TKÍ
         b.    1 skoðunarmaður reikninga til tveggja ára í senn. Á fyrsta
þingi sambandsins sem þessi lög eru í gildi, skal þó kjósa 2 skoðunarmenn
reikninga, annan til eins árs og hinn til tveggja ára.
         c.    fastanefndir sem starfa milli taekwondoþinga.
         d.    fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem
Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.
18.    Þingslit.

Engar tillögur að lagabreytingum verða lagðar fram á þinginu.

Stjórn TKÍ