Æfingabúðir RIG 2020 í bardaga

By:

Nú fer RIG helgin að nálgast og við vonum að allir séu spenntir. Við viljum benda þeim sem ætla að taka þátt í æfingunum á laugardag að það þarf að taka allar hlífar með sér. Einnig ættu þeir sem eiga brynjur, hjálma og Íranapúða, fókuspúða eða aðra púða að taka það með. Við verðum með eitthvað á staðnum til að lána þeim sem eiga ekki. Einnig biðjum við félögin að lána iðkenndum sínum sem vantar púða, brynjur og hjálma það sem uppá vantar. Sjáumst hress um helgina.