Afrekshópur og U&E í Kyorugi

By:

Taekwondosamband Íslands og landsliðsnefnd kynna með stolti úrtökur og æfingar Ungir & efnilegir og Afrekshóp TKÍ sem haldnar verða 25. janúar nk. í húsnæði Bjarkanna, Haukahrauni 1, Hafnarfirði. Æfingatímarnir verða frá kl. 10.00-11.30  og kl. 13.00—14.30. Æfingarnar eru öllum opnar á aldrinum 10-15 ára. Fyrir U&E er lágmark gult belti en blátt fyrir Cadet og eldri. Eftir þessa fyrstu úrtöku verða einnig settar upp 2-3 auka úrtökur í febrúar þar sem nefndin mun velja úr þátttakendum.  Við hvetjum alla þjálfara til að senda þá iðkenndur sem þeir telja eiga erindi í úrtökurnar. Æfingadagskráinn fram á vor verður svo auglýst 1. febrúar nk.