Tilnefningar um Taekwondokonu og Taekwondomann ársins 2019

By:

Taekwondosamband Íslands óskar eftir tilnefningum um Taekwondokonu og Taekwondomann ársins 2019. 

Óskað er eftir tilnefningu á einni konu og einum karli frá hverju aðildarfélagi TKÍ.

Skila þarf inn tilkynningum á netfangið tki@tki.is eigi síðar en kl. 18:00 miðvikudaginn 11. desember og skal tilnefningin vera rökstudd með hliðsjón af árangri á mótum, innanlands sem utan. 

Stjórn TKÍ mun fara yfir tilnefningar og útnefna eina kona og einn karl sem Taekwondofólk ársins, og munu þeir einstaklingar koma til greina í vali Íþróttamanns og Íþróttakonu ársins á vegum ÍSÍ og Samtaka Íþróttafréttamanna.