Dómaranámskeið 2 í bardaga

By:
Flottur hópur. Á myndina vantar nokkra sem þurftu að fara snemma

Við höldum áfram að vinna í grunnstoðunum og nú var komið að dómaranámskeiði númer 2 á árinu. Góður hópur mætti á dómaranámskeið 2, sem haldið var á vegum TKÍ í húsnæði Bjarkanna, sunnudaginn 13. október. 20 manns mættu, þar af 4 keppendur. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá að 5 manns, með 4. dan eða hærra, voru í húsinu auk þess sem meðalaldur var nálægt þrítugu. Ánægjulegt er að sjá svona góða mætingu og greinilegt að dómaranefnd hefur skilað frábærri vinnu síðustu mánuði. Yfirdómari TKÍ, Malsor Tafa, byrjaði námskeiðið á að bjóða alla velkomna og hóf fyrirlesturinn á yfirferð á uppfærðum reglum WT. Að þeirri yfirferð lokinni var farið í handabendingar og æfingar á þeim. Aðstoðarmennirnir kepptu svo í bardaga til að dómarar gætu æft sig í rauntíma. Einnig var farið yfir hlutverk þjálfara (coach) á keppnisstað, hlutverki hans og skyldum.

Malsor yfirdómari

Af þeim sem mættu stóðust sjö próf fyrir PP dómara og þrír fyrir C-dómara. TKÍ óskar þeim einstaklingum til hamingju og þakkar Malsor Tafa yfirdómara og Sigursteini Snorrasyni meðlimi dómaranefndar fyrir alldeilis frábært námskeið. Sjáumst svo öll á Íslandsmótinu. Hér fyrir neðan kemur svo listi yfir nýbakaða dómara sambandsins af námskeiði 1 og 2:

Class C: Andri Sævar Arnarsson National Referee License: ISL-002/19 TKÍ, Jóhann Gíslason National Referee License: ISL-005/19 TKÍ, Sigurjón Bergur Eiríksson National Referee License: ISL-007/19 TKÍ

Class PP: Ágúst Kristinn Eðvarðsson National Referee License: ISL-001/19 TKÍ, Eyþór Jónsson National Referee License: ISL-003/19 TKÍ, Haukur Valgeirsson National Referee License: ISL-004/19 TKÍ, Róbert Mikael Óskarsson National Referee License: ISL-006/19 TKÍ, Vigdís Helga Eyjólfsdóttir National Referee License: ISL-008/19 TKÍ, Gunnar Hákonarson National Referee License: ISL-009/19 TKÍ, Freyr Hreinsson National Referee License: ISL-010/19 TKÍ, Haukur Fannar Möller Natioanl Referee License: ISL-011/19 TKÍ, Helgi Rafn Guðmundsson National Referee License: ISL-012/19 TKÍ, Daníel Jens Pétursson National Referee License: ISL-013/19 TKÍ, Hjalti Leifsson National Referee License: ISL-014/19 TKÍ, Magnea Kristín Ómarsdóttir National Referee License: ISL-015/19 TKÍ, Gunnar Snorri Svanþórsson National Referee License: ISL-016/19 TKÍ