Tilnefningar í svartabeltisprófanefnd.

By:

Taekwondosamband Íslands óskar eftir tilnefningum í svartabeltisprófanefnd. 

Stjórn TKÍ óskar því eftir að hvert félag tilnefni aðila í nefndina með tölvupósti sem sendur skal á tki@tki.is fyrir þriðjudaginn 10. september. Stjórn TKÍ mun velja nefndarmenn úr innsendum tilnefningum og tilnefna formann nefndarinnar.

Hlutverk svartabeltisprófanefndar er að skipuleggja og fá aðila til þess að halda svartabeltispróf á vegum TKÍ, ásamt því að styðja við aðildarfélög sem vilja halda eigin svartabeltispróf en þurfa aðstoð til þess.

Svartabeltisprófanefnd skal leita samþykkis stjórnar TKÍ varðandi fjárútlát, ef kemur til álitamála, og í stórum málum svo sem hvar, hvenær og af hverjum próf skuli haldin.

Undir svartabeltisprófanefnd mun falla að sammælast við prófdómara um prófkröfur, skrásetja þær, varðveita þær til frambúðar og koma þeim til skila til próftaka.

Einnig mun hún sjá um að útvega húsnæði fyrir próf. Hún mun útvega aðföng, skipuleggja hátíðarhöld, sjá um auglýsingar fyrir próf og um útgáfu skírteina ásamt því að útvega prófdómara með tilskyld réttindi.

Nefndin mun taka við skráningum í beltapróf, og sjá til þess að ekki verði þjónusturof hjá TKÍ á þessu sviði í framtíðinni t.d. vegna erlendra reglugerðarbreytinga.

Svartabeltisprófanefnd verður skipuð til tveggja ára í senn. Ný svartabeltisprófanefnd tekur til starfa að loknu síðasta prófi hvers vetrar. Fráfarandi svartabeltisprófanefnd ber ábyrgð á að ný svartabeltisprófanefnd fái allan þann stuðning er þarf til þess að skiptingin gangi snurðulaust.